
Það sem fylgir Melot K9
meðlima aðgang
Þegar þú skráir þig í þjónustu hjá Melot K9 færðu ekki bara þjálfun — þú verður hluti af samheldnu samfélagi hundaeigenda sem leggja metnað í að ná sem bestum árangri.
Hópurinn
Fáðu aðgang að lokuðum Facebook-hópi þar sem þú getur tengst öðrum hundaeigendum, deilt reynslu og fengið stuðning á leiðinni.
Deildu framförum
Deildu myndböndum, fylgstu með árangri og upplifðu hvernig hundurinn þinn tekur framförum skref fyrir skref á K9 ferðalaginu þínu.
Ráð frá þjálfara
Fáðu ráð, gagnlegar ábendingar og lausnir beint frá þjálfurum Melot K9, ásamt æfingaáætlunum til að fylgja heima og stöðugri eftirfylgni þjálfara.
VIP aðgangur
Fáðu fyrstu fréttir af nýjum námskeiðum og viðburðum, ásamt sértilboðum sem eingöngu eru í boði fyrir meðlimi.
Staðsetning
Þjálfun fer fram heima hjá þér
eða í nærumhverfi þínu, þar sem hundinum þínum líður best.
(Gildir bara um Reykjavík)
Þjálfunartími
Hver tími varir 60+ mínútur, þar sem við bjóðum upp á einstaklingsmiðaða þjálfun sem tekur mið af þörfum hvers hunds.
Einkatímar eru tilvaldir fyrir eigendur sem vilja vera með í þjálfuninni og læra aðferðir sem virka fyrir þeirra hund. Hvort sem þú ert að vinna með nýjum hvolpi, reaktívum hundi eða þarft hjálp við sértækar áskoranir, þá eru einkatímar okkar sérsniðnir að þínum þörfum.
Við einblínum á að byggja upp sterk tengsl milli þín og hundsins með persónulegri leiðsögn.
Einkatímar
Plan
Búið verður til sérstakt plan fyrir þig og þinn hund ásamt heimaverkefnum og eftirfylgni frá þjálfara. (Skýrsla fylgir)
Samspil Eiganda & Þjálfara
Þjálfari þjálfar hundinn fyrir þig en mikilvægt er að eigandi haldi við þjálfun í heimahúsi.
Hittingur með þjálfara
Það er mikilvægt að taka hitting með þjálfara og fara yfir aðferðir sem virka fyrir þinn hund. Þetta tryggir að hægt sé að fylgja þjálfuninni eftir heima.
Þjálfunar Markmið
Eigandi upplýsir þjálfara um markmið og í hverju þau vilja vinna í. Dagurinn verður byggður á plani sem hentar þjálfunarmarkmiði.
Dagvistun & þjálfun
Snilldarlausn fyrir þá sem takmarkaðan tíma til þjálfunar í hversdeginum. Hún veitir hundinum krefjandi verkefni og örvun á meðan eigendur eru í vinnu. Þetta er fullkomið tækifæri til að viðhalda góðum siðum, læra nýja hluti og tryggja hundinum félagsskap og virkni yfir daginn.

Heimavistun hjá þjálfara
Öflug lausn fyrir þá sem vilja koma hundinum sínum á rétta braut með aðstoð fagaðila.
Við vitum að hvolpa- og unghundatíminn getur verið krefjandi; þess vegna bjóðum við uppá þjálfun þar sem við sjáum um vinnuna. Þú færð hvíld og hundurinn fær mikla þjálfun ásamt góðu plani fyrir áframhaldið heima.
Lengd dvalar
Melot K9 bíður uppá heimavistun í 2-4 vikur.
Dagleg rútína
Þjálfari setur upp persónulega rútínu fyrir hvern hunds og er byggð á getu, orku og vinnudrifi.
Markmið í þjálfun
Markmið verða rædd með eiganda áður en heimavist hefst og eigandi verður uppfærður í gegnum dvöl hundsins.
Stuðningur
Tveir hittingar í eftirfylgd fylgja heimavist ásamt plani til að tryggja að allt gangi vel og hægt sé að tryggja árangur.
Hóptímar og námskeið
Tilvaldir fyrir lengra komna hunda þar sem þjálfað er við raunverulegar aðstæður. Markmiðið er að efla einbeitingu og tryggja að hundurinn fylgi leiðbeiningum þrátt fyrir truflanir í annasömu umhverfi.
Frábært tækifæri til að kynnast skemmtilegu fólki og læra hvernig maður alhæfir hegðun svo hún virki hvar og hvenær sem er.
Fyrir hverja?
Hundar með traustan grunn sem þurfa a ð æfa og yfirfæra færni sína í mismunandi aðstæðum, bæði á almannafæri og í félagslegum aðstæðum.
Áherslur
Ró í kringum aðra hunda, öruggt innkall, laus taumganga við áreiti og úthaldsþjálfun.
Staðsetning
Æfingar fara fram á ýmsum svæðum á höfuðborgarsvæðinu. Allar upplýsingar verða sendar út þegar skráningu er lokið.
Hópastærð
Hópar eru hafðir litlir (hámark 6–8 hundar) til að tryggja góða leiðsögn.
Fjarþjálfun í gegnum Zoom
Hver hefur ekki lent í því að vera alveg búinn að fá nóg eða vita ekki næsta skref með hundinn sinn?
Með fjarþjálfun færðu persónulega leiðsögn – hvar sem þú ert staddur.
Þetta er frábær leið fyrir þá sem hafa ekki tök á að mæta í þjálfun í persónu eða búa utan höfuðborgarsvæðisins.
Þú færð skýr svör, hagnýt ráð og stuðning sem hjálpar þér og hundinum þínum að ná árangri.
Fylgjast með framförum
Við styðjum ykkur í gegnum þjálfunina, fylgjumst með framförum og tryggjum að þið náið markmiðum ykkar.
Vinsamlegast athugið: Þegar um alvarlegri hegðunarvandamál er að ræða, mælum við eindregið með einkatímum í persónu til að tryggja bestu mögulegu nálgun og þjálfun.
Spurningar og svör
Algjört spurninga-og svara tækifæri!
Hér er rými til að spyrja út í allt sem tengist hegðun og þjálfun hundsins.
Ráðgjöf og ráð
Persónuleg ráðgjöf og sérhæfð ráð sem auðvelda ykkur lífið í hversdeginum.


