top of page
Brynhildur Melot

Um þjálfarann

Brynhildur Melot

Eftir sex ár í London og dvöl í Frakklandi er ég flutt aftur heim, ríkari af reynslu í hundaþjálfun. Síðastliðin fimm ár hef ég unnið náið með hundum, þar af fjögur ár sem atvinnuþjálfari. Bakgrunnur minn nær yfir allar tegundir, allt frá Yorkshire Terrier til Cane Corso og belgískra fjárhunda (Malinois). Menntun mín felur í sér tvo sérhæfða skóla og fjölda fyrirlestra um verndarþjálfun og örugga hlýðni.

​Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á dýrum, þá sérstaklega hundum og hestum en ég vann með hestum þegar ég var  búsett í  Frakklandi. Hundar hafa þó alltaf átt hug minn og hjarta en ég  byrjaði mjög ung að rækta þá ástríðu með honum Cesar Millan í sjónvarpinu þó að ég hafi ekki tileinkað mér hans aðferðir seinna meir. 

​Nú er ég með hana Kollu mína sem er Field Line Labrador frá Brekkubyggð ræktun og hef að verið að þjálfa hana í veiði. 

  • Grunnþjálfun - hvolpaþjálfun
  • Innkall
  • Hlýðniþjálfun

Sérfræðiráðgjöf og vottuð vinnubrögð

Hjá Melot K9 byggist aðferðafræði mín á dýrmætri menntun og faglegri nákvæmni. Þjálfunin byggist á heildrænum aðferðum og hver einasti partur í lífi hvers hunds verður grandskoðaður þar sem allt helst í hendur. 

Ég hef þróað hæfni mína undir handleiðslu heimsþekktra sérfræðinga í atferli hunda og færi hverjum viðskiptavini persónulega og vísindalega nálgun. 

Hundakunnátta með alþjóðlega reynslu

IMDT (Institute of Modern Dog Trainers)

Grunnur í jákvæðri styrkingu.

Phoenix K9

Framhaldsnám sem dýpkaði skilning minn á ólíkum þjálfunaraðferðum.

Hugmyndafræði Melot K9

Mín hugmyndafræði er sú að ein aðferð hentar aldrei öllum.

Maður hættir aldrei að læra í hundaþjálfun og það á við um bæði eigendur og þjálfara en ég legg því mikla áherslu á að fara á fjölbreytt námskeið, vinnustofur og fyrirlestra meðfram skólunum sem ég fór í til að bjóða uppá bestu mögulegu þjálfun.

Ég greini eðli hvers hunds og hans sérstöku takta til að sníða þjálfunina að honum. Markmið mitt er að gera ferlið skemmtilegt og árangursríkt fyrir bæði eiganda og hund. 

Dog training Iceland
bottom of page